|
|
05.10.2008 18:50:51 / maggibaunabui
Loksins loksins kemur eitthvað frá mér undur og stórmerki. Jæja þá hefst skriftin
Það er alveg hellingur búin að vera að gerast herna hjá mér og henni Sissu minni, allavega síðan ég skrifaði síðast er ég búinn með 4.önn og er byrjaður á þeirri 5.tu og eigum við ekki bara að segja að það hafi gengið vel. Svo kom Ellý til okkar 23 júní sem var alveg magnað og var hjá okkur til 30 júlí minnir mig og Hlynur Smári litli riddarinn okkar kom líka, og hann var hjá okkur frá 12 júlí til 11 ágúst, þetta var alveg frábær tími sumar og sól allan tímann (allavega sumar) við gerðum svo margt saman td. fórum oft í bambagarðinn, ströndina og í dýragarða, allaega æðislegt bara.. svo var ég að vinna hérna í DK í sumar (við pípur en ekki hvað) hjá fyrirtæki uppi í Århus (verstu vinnuaðstæður í heimi  , en allavega gaman að prófa, og NEI ég ætla ALDREI að vinna hjá þessum vitleysingi aftur púntur.... Svo þann 7 águst gerðust svolítið sem átti eftir að breyta sambandi okkar Sissu all verulega, lítill kall kom í heiminn kl 22:45 (klukkutíma og korteri fyrir 08.08'0 . Þetta var einhver besta stund lífs míns í 1-3 sæti á hápunktalistanum. Úps, næstum búinn að gleyma einu prinsinn fékk nafnið Sigfús Viðar Magnússon. svo komu fult af fólki til okkar á þessu tímabili Bjössi koma aftur í júní, tengdó og litli Viðar komu sama dago og Prinsinn kom í heiminn (voru í lestinni og rétt misstu af þessu) áu voru hjá okkur til 25 ágúst og þá koma mamma mín í heimsókn sama dag og tengdó fóru og var til 30 ágúst. Eins og ég segi þá var sumarið bara alveg ljómandi gott.
jæja er eiginlega búinn að fara að mestu leiti yfir allt sem stóð uppúr síðan síðast svo ég ætla að hætta núna, svo bara bæ í bili.
ps. vonandi verð ég svo aðeins virkari hér en ég hef verið.
Kveðja, Maggi píp
»
06.01.2008 19:51:55 / maggibaunabui
Jæja nú er ég loksins búinn að átta mig á lykilnúmerinu aftur svo best að reyna að skrifa eitthvað. Núna eru liðnir nokkrir mánuðir frá því að ér skrifaði síðast svo fyrirgefiði öll sem eruð búin að bíða við tölvuskjáinn allann tímann, ég skal skrifa smá núna svo að þið getið farið að snúa ykkur að einhverju öðru. Það er nú búiða að vera ýmislegt að gerast hjá okkur Sigurbjörgu (bestu) síðan fyrravor td það er ég búinn að taka 2 próf í þessum skóla aðra og þriðju önn, og stóðst að sjálfsögðu báðar JIBBÝ bara 4 eftir . Í stuttu máli þá fórum við heim í júlí eftir prófið á annari önn og vorum hjá mömmu í kóp. ég fór að vinna við pípulagnir hjá HM pípulögnum sem staðsettir eru á Akranesi maður var bara eins og jójó á milli, það var bísna gaman bara á meðan hún Sissa mín var heimavinnandi með börnin, og að sjálfsögðu var flakkað á milli Ak og Kóp. fórum á eitt ættarmót hjá fjölskildu Sigurbjargar og svo sumarbústaðarferð með mömmu minni, pottur og allt. Svo komum við aftur út í ágúst og ný önn byrjaði það var bara svona eins og áður (skólabarinn og svoleiðis)hehe. Svo í vetrarfríinu fórum við skötuhjúin til Hamborgar í "heimsborgarferð" það var upplifun útaf fyrir sig, maður var bara skíthræddur í umferðinni ( maður vill nottla ekki rispa alla fínu bílana þeirra) víð vorum sko á LANG ljótasta bílnim á svæðinu og þótt víða væri leita, hotelið okkav var í göngufæri frá einni mestu klámgötu sem ég hef á ævinni komið í herre guð, bara hórur og læti  En svo hélt námið bara áfram þar til ég þurfti að fara heim í lok nóv vegna andláts afa gamla  leiðinlegt en ekkert við því að gera. Og á meðan ég vara að bíða fram að kistulagningu þá fékk ég einhvern vírus í innra eyrað sem olli því að jafnvægisskynið went out of order og ég varð eins og haugrugluð fyllibytta, mesta ógeð sem ég hef lent í OOOJ bara gubb og vesen þannig að ég var lagður inn á spítala með ógleðislif í æð. Jæja best að reyna að gleyma þessari lífsreynslu, og vona að þetta gerist aldrei aftur. En svo áttum við bara gleðileg jól heima á Akureyri (miðað við það sem á undan hafði gengið og svo fór ég suður aftur 27. des en þegar ég kom suður þá hitti ég aftur hálfbræður mína frá Hafnarfyrði sem ég hef ekki séð í 12-13 ár, það var mjög gaman. 29. des þurfti ég svo að fara aftur til DK án hennar Sissu minnar sem ætlar að vera heima og klára stúdentinn næstu önn hún er svo dugleg, til að undirbúa mig fyrir próf sem ég fór í 3ja jan en að sjálfsögðu var tekin smá pása á lestrinum á gamlárskvöld. Ég og Vignir fórum og keyptum sprengjur hérna (næstum því ókeypis miðað við heima) og puðruðum því út í loftið eins og smástrákar gaman gaman. En svo daginn eftir prófið fékk ég gesti frá Ísl. Þórir og Ásta kæratan hans eru hérna hjá mér og verða fram á miðvikudag því að hún er að koma í skóla hér á Jyllandi (Jótlandi). Og nú er ég eiginlega bara búinn að fara yfir þette allra mikilvægasta sem gerðist hjá mér síðasta hálfa árið, svo ég segi bara heyrums bara aftur í næsta fréttaannál Magnúsar að hálfu ári liðnu    ps. ÉG SAKNA ÞÍN SISSA MÍN OG ÉG ELSKA ÞIG ÚT AF LÍFINU kv. MB píp (hr.lónlí
»
06.06.2007 09:09:40 / maggibaunabui
Ég er að verða
geðveikur á þessum skóla 
Hef ekkert meira um það að
segja...
»
09.05.2007 21:45:49 / maggibaunabui
Nú er
orðið svolítið langt síðan að ég bloggaði síðast, svo hér kemur
smá fyrir ykkur sem eruð alltaf að kvarta yfir því að ég skrifi
ekkert, en kommentið samt aldrei sjálf.
Skólinn heldur
alltaf sinn sama gang nema þar er bara alltaf meira og meira
stress, virðist ekkert grynnka á verkefnahrúgunni sama hvað maður
er duglegur vinnavinnnavinnapúff
En segjum frá
einhverju skemmtilegu núna, í síðustu viku/helgi var bara allt að
gerast, það byrjaði á því að það voru verkefnaskil hjá okkur í
skólanum á fimtudaginn (æði að vera laus við það helvíti, BUUUULLL
verkefni)og það var að sjálfsögðu haldið upp á það á barnum
á eftir í örugglega 20+°hita (live music og læti trallalallala)
nokkra öl og spjall bara en á föstudaginn var frí í skólanum
JÚHÚ því að það var einhver bænadagur eða eitthvað, þannig að
við gátum leyft okkur að fagna smá. Seinna um daginn,
eða um kvöldmatarleitið fórum við svo í grill til Gunnars og Rúnars
(alveg ljómandi góðir hamborgarar bara, í alvöru) vorum þar í
nokkra tíma þar til við fórum til Sigga og Vallýar í smá stund en
við slúttuðum svo deginum með risa brennu og gítarsöngli, og
að sjálfsögðu var það enginn annar en hinn heimsfrægi (allavega á
kollegíinu) Don Tidz
(Tiddi) sem sá um að halda uppi stemmingunni hér á
skólalóðinni (bara útihátiðarstemming) mikið gaman, kveiktum í öllu
sem við fundum.
Föstudagur:
hmmm letidagur...
Svo á
laugardaginn var golfmót hér á vegum LEIT.IS (nafnið á golfklúbbi
íslendingarfélagsins) sem var bara helvíti gaman, 18 holur með
aðeins eina kilfu fyrir utan pútter (sniðugt fyrirkomulag), gekk
alveg ágætlega bara hjá mér þótt seinni 9 hefði mátt vera betri,
kom allavega heim með ein verðlaun (nándarverðlaun) svo þetta var
ekki bara eimtóm tímaeyðsla  , seigur
strákurinn.
Restinni af
helginni var svo bara eytt í rólegheit, slökun og hugleiðslu fyrir
næstu skólaviku (sem er núna) þannig að ég hef bara ekkert meira
skemmtilegt að segja í bili, þannig að ég bið bara að heilsa öllum
sem nenntu að lesa.
Takk fyrir mig
Maggi píp.
»
16.04.2007 21:16:20 / maggibaunabui
»
15.04.2007 19:56:10 / maggibaunabui
Jæja best að reyna að
skrifa aðeins meira.
Það er komið sumar hér í
Horsens og veðrið verður bara bjartara og bjartara  ne
í skólanum er ekki eins farið, þar verður allt svartara og
svartara en það reddast (er það ekki)
Það er allveg hellingur
búið að vera að gerast hér hjá okkur síðan ég skrifaði síðast td.
páskafrí, heimsóknir og ferðalög. Páskarnir voru svaka fínir
(páskaegg og allt) gott veður og læti. Svo fengum við líka frábæra
heimsókn frá Íslandi, BJÖRNINN bara mættur á svæðið í öllu sínu
veldi og við fórum með hann út um allt td: í Aalaborg ZOO,
Århus, Søndeborg á grensann að kaupa øl mmmmmmmmm og
fleira. Svo síðasta hvöldi hans hér þá héldum við svaka
party með grilli og allt og fullt af fólki en nú er hann
farinn heim aftur og við vonum bara að hann komi aftur
fljótlega.
Og nú er skólinn kominn
aftur á fulla ferð aftur og best að reyna að sinna því eins vel og
maður getur (maður verður bara) þannig að ég er að hugsa um að fara
að læra aðeins svo að þetta verður ekki lengra hjá mér í
dag.
góðas
stundir
Kv. MB
PÍP
»
27.03.2007 20:14:48 / maggibaunabui
Og það er komið
þriðjudagskvöld
og það styttist í
páska
Það er svosem
ekkert merkilegt búið að gerast hér síðan að ég skrifaði
síðast nema kanski að við Sigurbjörg keypum okkur bíl. JÚHÚ loksins
loksins búinn að vera að drepast úr hælsæri í marga mánuði að
þurfa labba svona mikið er bera fyrir hunda og
ketti og
svoleiðis drasl (og svo hann Kristinn minn, en hann er hvorki
hundur né köttur, þó að það sé nú oft svolítill hundur í
honum voff voff)
En til að þessi færsla verði nú
ekki of stutt og leiðinleg ákvað ég að láta þessar reglur fylgja
með svona að gamni  
og stelpur ef þið farið
ekki eftir þessum reglum er það okkar (strákana) réttur til að fara
fram á mjög miklar
skaðabætur...
ég veit
það bebblega, ég
gáði
Þessar reglur eru teknar úr kennslubók í heimilisfræðum frá
1950. Heimilisboðorðin
9. (og eru enn í fullu
gildi)
1. Hafðu
kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Það veitir honum þá
tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt
um
þarfir hans. Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim
og
tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn
hann
er heim, en það er karlmönnum nauðsynlegt.
2. Notaðu 15 mín. til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann
kemur.
Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er
þreyttur.
Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.
3. Taktu upp allt rusl og dót. Farðu eina umferð um húsið og
safnaðu
saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum. Renndu svo
tusku yfir
borðin til að þurrka af og þrífa svolítið. Eiginmanni þínum mun
finnast
hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir
hann.
4. Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa
hendur
og andlit og greiða þeim. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt.
Þau eru
hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.
5. Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum,
s.s.
uppþvottavél, þvottavél, þurrkara og ryksugu. Reyndu að sjá til
þess að
börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi.
6. Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur.
Ekki
heldur kvarta þó hann komi of seint í mat. Þú getur verið viss um
að
þínar kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann
hefur
þurft að þola yfir daginn.
7. Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt. Láttu hann halla
sér
aftur á bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér
smástund
í rúmið. Vertu tilbúinn með kaldan eða heitan
drykk handa honum. Bjóddu honum að
klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum. Ræddu við
hann
með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á.
8. Láttu hann ráða kvöldinu. Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig
út
að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að
hann
hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og
þarfnast
hvíldar heima.
9. Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn
getur
fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan
dag.
Kveðja
Maggi hjónabandsráðgjafi
og
muna eftir að kommenta
»
18.03.2007 07:29:27 / maggibaunabui
Jæja hvað segir
fólkið?.......Já er það?.........Gott hjá ykkur 
En hvað er eiginlega hægt að segja
á svona ljomandi fínum sunnudags morgni...
jú til dæmis það að ég hef bara
ekkert að gera, og það er merkileg með það að það er afar
langt síðan að það hefur gerst hjá mér, málið er að ég var að skila
verkefni í skólanum á föstudaginn og þá hef ég bara ekkert
um neitt að hugsa þessa stundina gaman
gaman 
Eftir presenteringuna á fös. fór
ég ásamt bekkjarfélugum mínum aðeins á skólabarinn að fagna þessum
merku tímamótum í lífi okkar JÚHÚ bara svona nokkra classic og
spjall og það endaði allavega þannig að ég og fleiri fórum
hreinlega bara á skrall, og hvern haldíð þið að ég hafi hitt á
skólabarnum?? jú engann annan en sjálfann Danny Crain (William
Shatner) Á eftir skólabarinn fórum við til Sigga og Vallýjar
(þau eru geggjuð) gestrisnasta fólk í heimi og þar vorum við í nokkra klukkutíma,
eða þar til við fórum heim að sofa (besti Irish coffie sem ég hef
smakkað) mmmmmmmmmmmmmmm


Fyrir þá sem ekki trúa mér, hérna er
sykurpúðinn
Og svo á laugardeginum fór ég í typpapartý með
Gunna til
Geira og Sigurbjörg fór í píkupartý með Gunnu til
Dagbjartar og það var býsna gaman bara en við ákváðum að fara í
fyrrafallinu heim (en það er nottla algjört möst að fá sér slæsu
áður) J Sunnudagurinn er bara búinn að vera sófadagur og
ekkert að gerast nema við fengum okkur slísí börger með Tidda og
horfðum á fullt af bíói og svo er nú dagurinn ekki búinn að vera
lengri svo ég hef ekkert meira að skrifa þar til
næst
Bless bless
Maggi píp
»
06.03.2007 22:01:08 / maggibaunabui
Ég var að
pæla í konum og hvernig væri hægt að skilja þessi furðulegu
fyrirbæri og hvernig maður ætti að umgangast þau, því það er
alveg sama hvað maður gerir er það alltaf
vitlaust.
Ég gerði því
nokkrar rannsóknir á konufyrirbærunum og komst að því að því
að þær eru yfirfullar af svokölluðu smásemis- og tuðgeni sem
fyrirfinnst hvergi annarstaðar en í höfuðinu á umræddu
fyrirbæri.
En svo rakst
ég á þennan ævaforna lista sem fyrirbærin ættu að taka afar
alvarlega og gæti hjálpað fjölskyldum sem eru þjakaðar af tuði og
smámunarsemi.
Þetta er það sem konur ættu að vita!!!Eða allavega það sem
karlmenn vilja að þær vita.
1.Ef þú heldur að þú
sérst feit, þá ertu það örugglega. Ekki spyja.
2. Lærðu sjálf á
klósett setuna, ef hún er uppi, settu hana þá
niður
3. Konudagur,
Mæðradagur, samvistarafmælisdagar, þeir
gleymast.
4. Ef þú spyrð
spurningar sem þú vilt ekki fá svar við, ekki
spyrja.
5. Stundum erum við
bara ekki að hugsa um þig. Sættu þig við
það
6. Köttur er bara
köttur, óþarfi að grenja í viku ef hann fer.
7. Hundar eru
BETRI en kettir. Punktur.
8.
Bróðir þinn er asni, Fyrrverandi gæinn þinn líka og ábyggilega
pabbi þinn.
9. Segðu hvað þú vilt, ekki
hinta að því.
10. Að pissa
standandi, þýðir að það fer
útfyrir.
11. Já og Nei, eru
fullkomlega gild svör
12.
Hausverkur í 7 mánuði er vandamál, farðu til
læknis
13. Mamma þín þarf ekki
endilega að vera besti vinur okkar
14. Já, það þarf að setja bensín á
bílinn
15. Nei það þarf ekki að vera að
stjörnumerkjabókin segi til um hvort við eigum saman eða
ekki
16. Allt sem var sagt fyrir 6 til 8
mánuðum er eitthvað sem má ekki nota í rifrildum í dag. Það sem var
sagt fyrir sólhring síðan hefur
fyrnst
17. Ef það er eitthvað sem þú segir
sem má túlka á 2 vegu en annað atriðið særir þig og gerir þig ílla,
þá meintum við auðvitað hinn hlutinn sem þetta
meinti.
18. Ekki strjúka lampanum ef þú
vilt ekki að andinn komi út.
19. Þú getur annað hvort beðið okkur um að
gera eitthvað eða sagt okkur hvernig þú vilt að það sé gert, en
ekki bæði.
20. Christofer Columbus
þurfti ekki leiðbeiningar,,, ekki við heldur.
21. Konur í wonder bra og
fráhneftum skyrtum efst, eru búnar að tapa réttinum um að ekki megi
horfa á brjóstin þeirra.
og ef þið hafið einhverju við að
bæta þá endilega að kommenta 
kveðja DR.Maggi  
»
03.03.2007 13:58:22 / maggibaunabui
Jæja vegna mikillar
áskorunnarer ég loksins búinn að opna þessa blessuðu
síðu.
Ég vona bara að þessi ákvörðun hjá
mér verði til þess að drepa í öllum þeim gagngrínisröddum um að ég
kunni ekki að skrifa.
Jæja en lífið hér í Horsens
gengur samt bara sinn sama gang (sofa, borða, skóli, borða, borða
meira, öl og svo bara aftur að sofa) og ef að ég breyti rútínunn
aðeins og reyni að bæta sturtuferðum inní ferlið verð
ég stundum svolítið heppinn og fæ kannski smá BÍÍÍÍP
hjá henni Sissu minni en þá verð ég líka að taka þann tíma frá
einhverju öðru, og oftast bitnar það nú á blessuðum skólanum

En ekki meira um það núna, það
er byrjað að vora hér í baunalandi fuglarnir farnir að singja og
blómin farin að tegja blöin sín til himins til að sleikja sólina...
OOOJ mér leið bara eins og pínulítill hommapúki hafi skriðið inn í
mig til eð reyna að ná völdum yfir karlmannlegum hugsunum mínum, vá
kvað ég var heppinn að fatta það í tíma þetta hefði orðið
DISASTER.
Jæja besr að hætta núna áður en
ég verð búinn að brenna yfir báðar heilasellurnar í leit að meira
bulli
kveðja Maggi mega
»
|
Heimsóknir
Í dag: 1 Alls: 8825
|